UMSÓKNIR |
|
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum í upphafi hvers árs. Stjórn Listskreytingasjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki til listskreytinga í opinberum byggingum er falla undir Myndlistarlög frá 2013. IV. KAFLI Opinberar byggingar ásamt umhverfi þeirra, svo og önnur útisvæði í opinberri eigu, skal fegra með listaverkum. Skal miða við að listaverkin séu þáttur í þeirri heildarmynd sem byggingu og umhverfi hennar er ætlað að skapa. Til opinberra bygginga teljast:
Byggingar sveitarfélaga og stofnana þeirra geta enn fremur talist til opinberra bygginga enda séu umráð sveitarfélags yfir þeim með hliðstæðum hætti og greinir í 1. mgr. Til opinberra bygginga í skilningi laga þessara teljast hins vegar ekki byggingar sem eru reistar til bráðabirgða, skemmur og önnur mannvirki eða byggingar þar sem staðsetning takmarkar mjög aðgengi. Listskreytingasjóður veitir ekki styrki til listaverka sem umsóknaraðili er þegar búinn að kaupa eða ráða listamann til að vinna, án atbeina sjóðsins, né til verkefna þar sem dómnefnd hefur þegar verið skipuð. Stjórn Listskreytingasjóðs skal vera til ráðgjafar um listskreytingu þeirra mannvirkja sem lög þessi taka til Umsóknareyðublaðið er rafrænt fyrir netumsóknarkerfi Listskreytingasjóðs. Nauðsynlegt er að umsóknin sé ítarleg og frágangur vandaður. Stjórn sjóðsins tekur ákvarðanir um styrkveitingar grundvelli umsókna sem sjóðnum berast. Umsóknarfrestur er til 1. mars ár hvert
|